10/10 Excellent
Áslaug S.
10 Aug 2024
Frábær upplifun fyrir alla í fjölskyldunni minni
Ég hafði pantað þetta hús ári áður en við komum þangað, og mér kveið fyrir því að allt gengi kanski ekki upp. Það breytist margt á einu ári, það komu tveir einstaklingar aukalega inn í ferðina, eitt ungabarn innan við 3ja mánaða og einn kærasti. Hef verið í sambandi við Pascal sem ég þá þekkti ekkert. Vissi ekki að hann væri svona nálægt húsinu sem við leigðum. Ég þurfti þá alls ekki að kvíða neinu og á endanum þegar við komum þá gerði hann allt svo okkar upplifun væri sem best. Gef honum mína bestu meðmæli og líka hönnun hússins sem er frábær að okkar mati. Það var gott að sameina alla saman í þessu húsi okkur fjölskylduna og á ég eftir að eiga góðar minningar frá þessum stað næstu árin.
Takk kærlega fyrir mig Pascal
Áslaug S.
Stayed 10 nights in Jul 2024